Jæja...mér datt í hug að gera eins og Auður hefur verið duglega að gera og ákvað að skella hérna inn nokkrum myndum sem ég hef tekið hér og þar eftir skjálftann sem varð 29. maí síðastliðinn.
Hér má sjá þessa sandgíga sem kapparnir uppi í skóla höfðu aðeins heyrt að hefðu myndast í skjálftanum 1896 en aldrei séð áður.
Á þessari mynd má sjá hvernig kirkjuturninn brotnaði og ná sprungurnar allan hringinn og má einnig sjá inni í turni. Það er greinilegt að hann hefur sveiflast nokkuð vel til og jafnvel bara heppni að hann skyldi ekki hrynja niður í látunum! Einnig fóru allir kirkjubekkir á hliðina og eru þeir ansi þungir og nánast ómögulegt fyrir einn mann að hreyfa þá til.
Að lokum skellti ég inn mynd sem er tekin hjá móðursystur minni og þarna hefur stór skápur hreinlega tekist á loft og lenti á borðstofuborðinu og fór þar í tætlur. Að sjálfsögðu geymir fólk sparistellið og það verðmæta í svona fínum skápum og ekki er hægt að segja að margt hafi sloppið heilt úr þessum skáp, aðeins nokkrir diskar og eitthvað smáræði.
Kveðja af suðurlandinu og bíð spenntur eftir næsta kipp og vona að hann verði almennilegur en kannski án allra þessara skemmda.
Sigurjón